Karellen
news

Velkomin í Víkina!

13. 08. 2019

Góðan dag kæru foreldrar!

Ég vil byrja á að bjóða ykkur og börnin ykkar hjartanlega velkomin í Víkina.

Fyrstu dagarnir, Víkin opnar kl. 8 n.k fimmtudag og þar sem þetta er fyrsti dagur barnanna í Víkinni höfum við þann dag styttri eða til kl.13.

Ef aðlögun barnsins ykkar gengur vel er barninu velkomið að vera fullan dag næsta dag á eftir, annars tökum við samtalið og förum hægar í aðlögunina ef þess þarf.

Hlakka til ánægulegra samskipta við ykkur í vetur og að fá að kynnast börnunum ykkar.

Bestu kveðjur

Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir, skólastjóri í Víkinni


© 2016 - 2024 Karellen