Karellen
news

Sameiginlegt skóladagatal grunnskóla, leikskóla og frístundar 2021-2022

14. 04. 2021

Sameiginlegt skóladagatal grunnskóla, leikskóla og frístundar 2021-2022

Sameiginlegt skóladagatal grunnskóla, leikskóla og frístundavers fyrir skólaárið 2021-2022 hefur verið samþykkt af fræðsluráði og má sjá það hér í framhaldi.

Skólasetning í GRV verður 24. ágúst. Starfsdagar eru 13, þar af eru 9 utan starfstíma skóla en sjá má dagsetningar starfsdaga í skóladagatalinu ásamt dagsetningum vetrarleyfa, foreldraviðtala o.fl.

Leikskólar opna eftir sumarlokun 3. ágúst. Starfsdagar eru fimm og má sjá dagsetningar þeirra í dagatalinu. Skert þjónusta verður í leikskólum dagana 27.-29. desember þar sem ekki verður um skipulagt leikskólastarf að ræða heldur vistun fyrir þá sem þurfa. Foreldrar sækja um vistun þá daga en leikskólagjöld lækka hjá þeim sem ekki nýta þá.

Frístundaver opnar 16. ágúst. Starfsdagar eru fjórir og má sjá dagsetningar á þeim í dagatalinu. Heilsdagsvistun verður í boði á starfsdögum skóla að hausti, á vetrarleyfisdögum, foreldraviðtalsdögum og í jólaleyfi skóla auk starfsdaga skóla í janúar og júní. Þessir dagar eru merktir sérstaklega í dagatalinu. Þeir foreldrar sem ætla að nýta sér frístundarúrræði eru hvattir til að huga að því að sækja um en það er gert í gegnum íbúagátt.

sameiginlegt skóladagatal 2021-2022.pdf

© 2016 - 2024 Karellen