Karellen
news

Þátttaka í Evrópuverkefni

16. 11. 2021

Þátttaka í Evrópuverkefni (Erasmus+)

Sumarið 2020 fengum við þær góðu fregnir að umsókn okkar hjá Erasmus+ var samþykkt https://www.erasmusplus.is/ , en það er styrkjaáætlun ESB til mennta- æskulýðs- og íþróttamála.

Við sóttum um í samstarfi við Sóla, Kirkjugerði og þrjá leikskóla í Þýskalandi og er verkefninu stjórnað þaðan. Verkefnið snýr að sjálfbærni og náttúrukennslu, þar sem áhersla er lögð á stærðfræði og tungumál ásamt því að skólarnir læri hverjir af öðrum. Verkefnið okkar ber yfirskriftina “Good learning in the Nature classroom for all children”.

Starfið okkar breytast ekki að öðru leyti en því að við munum deila vinnunni okkar með vinum okkar í Þýskalandi og þau deila sinni vinnu með okkur.

Allir sex skólarnir vinna saman að verkefninu en hver skóli á sinn vinaskóla og er Víkin í samstarfi við leikskólann Farbkleckse í Hürth https://farbkleckse.froebel.info/ .

Verkefnið stendur yfir í tvö ár og var stefnan að heimsækja Þýskaland og skólarnir úti svo okkur, en þar sem ekki er hægt að ferðast neitt í núverandi ástandi þá verður áherslan á samstarfinu meiri á netinu. Við notum E-twinning, http://etwinning.net sem er lokuð samskiptasíða á vegum Erasmus+. Stefnum við svo á að starfsfólk Víkurinnar geti heimsótt Þýskaland undir lok verkefnisins og starfsmenn þeirra okkur.

Krakkarnir fengu kynningu á verkefninu þegar þau voru á Kirkjugerði og Sóla síðastliðið skólaár. En nú í morgun vorum við með fjarfund með vinum okkar í Þýskalandi þar sem við lásum sömu söguna (The very hungry Caterpillar) á tveimur tungumálum, við fyrir þau á íslensku og þau fyrir okkur á þýsku. Gekk fundurinn mjög vel og fannst börnunum mjög áhugavert að heyra söguna lesna á öðru tungumáli en okkar.

Við munum að sjálfsögðu halda áfram að leyfa ykkur að fylgjast með framvindu verkefnisins.

Meðfylgjandi eru myndir frá fjarfundinum við vini okkar í Þýskalandi frá í morgun.

© 2016 - 2024 Karellen