Karellen
news

Bókagjöf - Orð eru ævintýri

25. 01. 2024

Menntamálastofnun hefur gefið öllum börnum sem eru fædd 2018-2020 bókina Orð eru ævintýri. Um er að ræða myndabók sem býður upp á tækifæri til að spjalla um orð daglegs lífs og efla orðaforða. Aftast í bókinni eru stuttar leiðbeiningar um notkun og hugmyndir að umræðuefnum.

Leikskólinn fékk einnig bækur að gjöf og verða þær notaðar til málörvunar með börnunum hér í Víkinni. Við vonum að bókin verði vel notuð á öllum heimilum og foreldrar og börn geta notið þess að lesa saman og læra ný orð.

Bókin er einnig til á rafrænu formi hér: https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/ord_eru_aevintyri/

Orð eru ævintýri - rafbók | Menntamálastofnun

© 2016 - 2024 Karellen